Við erum öll fyrirliðar
Við í Gleðistjörnunni erum sjúklega stollt og montin að fá að taka þátt í þessu verkefni með UMFÍ, Kvan, UEFA FOUNDATION og KSÍ. Við erum ÖLL fyriliðar 🌟🌟🌟🌟🌟
Krakkarnir í FRAM og þremur skólum í Grafarholtinu byrja á þessu tilraunaverkefni sem vonandi mun breiðast útí alla skóla/félög 🌟🌟🌟🌟🌟
Vanda í Kvan ásamt Theodóri Inga og Jóhönnu Ósk
Það eiga allir rétt á því að finna gleði og hamingju, finna að það er alltaf einhver sem er ekki sama. Gleymum því ekki að þrátt fyrir þrautagöngu Þuríðar Örnu þá var hún hamingjusömu, hún var glöð og það var alltaf eitthvað fjör. Það var þannig m.a. af því að það var fullt af fólki sem var tilbúið til að hjálpa okkur og henni. Það er það sem Gleðistjarnan snýst um - við viljum hjálpa öðrum að finna gleðina og trúa því að það er alltaf einhver vonarglæta í hlutunum.
Það er von okkar að þau sem bera fyrirliðabönd Gleðistjörnunnar láti bandið minna sig á að það geta allir látið gott af sér leiða.
Ef þú vilt bera fyrirliðabandið þá geturðu sent tölvupóst á aslaug@gledistjarnan.is - stk kostar 2000kr nema þú kaupir 15 plús þá er það 1500kr stk. Við eigum bæði til í barnastærð og fullorðins. 🌟🌟🌟🌟🌟