Gleðistjarnan fær veglegan styrk frá Víkingi

Gleðistjarnan hefur fengið styrk að upphæð 1.000.000 króna frá Knattspyrnufélaginu Víkingi í tengslum við Petit Hamingjumót Víkings sem fram fór í ágúst.

Petit Hamingjumótið hefur fest sig í sessi sem einstakur viðburður þar sem gleði, samvera og jákvæður andi eru í fyrirrúmi. Með mótinu hefur Víkingur jafnframt lagt sitt af mörkum til góðra málefna og í ár hlaut Gleðistjarnan þann heiður að verða styrkþegi mótsins.

Framlagið mun nýtast vel í áframhaldandi starfsemi Gleðistjörnunnar og styðja við þau verkefni sem félagið stendur fyrir í þágu barna og fjölskyldna.

Við hjá Gleðistjörnunni erum afar þakklát Víkingi, þátttakendum, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem komu að Petit Hamingjumótinu og gerðu þennan stuðning mögulegan. Það er ómetanlegt að finna fyrir slíkum velvilja og samfélagslegum stuðningi.

⭐ Hjartans þakkir til Víkings fyrir rausnarlegt framlag og fyrir að láta gott af sér leiða í gegnum Petit Hamingjumótið.

Next
Next

Við erum öll fyrirliðar